The Laundromat Cafe

The Laundromat Cafe opnaði í ágúst 2004 í Elmegade 15 á Norðurbrú í Kaupmannahöfn.

Hugmyndin sem býr að baki er sú að á kaffihúsinu sé hægt að þvo fötin sín, fá sér að borða, lesa bók, drekka kaffi eða sörfa á netinu í þægilegu og afslöppuðu andrúmslofti. The Laundromat Cafe var eitt af fyrstu kaffihúsunum í Kaupmannahöfn til að bjóða upp á fría nettengingu.

Í ágúst 2006 opnaði The Laundromat Cafe í Århusgade 38 á Austurbrú í Kaupmannahöfn.

Í mars 2011 opnaði The Laundromat Cafe í Austurstræti 9.

Í Desember 2011 opnaði The Laundromat Cafe á Gammel Kongevej 96 á Frederiksberg í Kaupmannahöfn.

Við bjóðum upp á fjölbreyttan matseðil með heimagerðum mat, kökum, heilsudrykkjum, smoothies, mjólkurhristingum, kaffi, tei, vínum og miklu úrvali af bjór. Allt saman borið fram með brosi á vör. Á The Laundromat Cafe er að finna gott úrval tímarita og dagblaða og í barborðinu eru 6000 bækur sem allar eru til sölu. Hjá okkur getur þú líka spilað á spil, farið í yatzy og kotru eða teflt. Í kjallarnum er stórt barnaleiksvæði þar sem þau yngstu finna örugglega eitthvað fyrir sig.